Móttaka rafrænna reikninga
Hvernig tekur þú við?
Svarið við þessari spurningu er einfalt: Á þann hátt sem þú kýst. Við aðlögum reikningana þína þannig að gerð þeirra henti bókhaldskerfinu þínu.
Við náum til birgjanna – Allra!
Þegar skipt er yfir í rafræna reikninga er mjög mikilvægt að fá birgjana með í verkefnið. Þess vegna er þjónusta okkar tvíþætt: Hún miðast annars vegar við þarfir þínar og hins vegar birgja. Við erum í miðpunktinum og náum jafnt til stórra og smárra fyrirtækja.
Áralöng reynsla
Þjónusta InExchange og þær lausnir sem við bjóðum viðskiptavinum okkar byggja á áralangri reynslu okkar á sænska markaðinum. InExchange hefur á síðustu árum hjálpað á fjórða þúsund fyrirtækjum í Svíþjóð að taka upp rafræna reikninga og í hverjum mánuði bætast hundruðir ánægðra viðskiptavina við þann hóp. Við tökum á móti reikningum frá mörgum ólíkum fyrirtækjum á markaðnum og komum þeim til þín í þeirri mynd sem hæfir bókhaldskerfi þínu.
Enn meiri ávinningur
Hafðu betri stjórn á hlutunum með minni fyrirhöfn. Notfærðu þér aðra þjónustu okkar eins og til dæmis:
- Meðferð tilvísana
- Pöntunarnúmer
- Viðhengi
- Samþykktarferli
- Lyklun
Það eina sem við gerum ekki við reikningana þína er að borga þá ...